Sent af: gunnare í Sprikl
Ætlaði að taka þátt í bæði Jökulsárhlaupi og Barðsneshlaupi en virðist hafa vanmetið hversu langan tíma það tæki mig að verða góður eftir Laugaveginn. Er kominn með helvítis verk í vinstra hné og því lítið annað að gera en hvíla hlaupin í bili. Pælingin núna bara að lyfta og safna vöðvum. Miða á byssusýninguna er hægt að nálgast með því að senda mér póst.
Í því ljósi hef ég lyft eins og óður maður og refsað lóðunum ansi duglega hér í kaupstaðnum á Nesi í Norðfirði. Já og því til viðbótar hef ég safnað eins tani af slíkum krafti að halda mætti að ég væri á leiðinni í áheyrnarprufu til að verða næsti hljómborðsleikari/brjóstvöðvahnykklari Mercedes Club - maður vill nú líta sómasamlega út á Neistaflugi.
2 Athugasemdir »
Hér á heimilinu er í gangi verkefni sem gengur undir vinnuheitinu Haraldur Pólfari. Framganga verkefnisins er mæld í vikum og er Pólfarinn núna kominn 21 viku áleiðis en áætluð verklok verða c.a. í 39. viku. Til að fylgjast betur með framvindu Haraldar bendi ég á síðuna hennar Laufeyjar þar sem fylgst er með Haraldi Pólfara í máli og myndum.
3 Athugasemdir »
Tókst á óskiljanlegan hátt í gær að leggja 11.000 þúsund krónur inná Krabbameinsfélagið fyrir mistök. Ætlaði bara að borga fyrir miða á tónleika en sá þá í heimabanka Kaupþings þennan nýja fídus; hægt að smella á bláan og bleikan borða og þá fyllast inn reiknings upplýsingar til að styrkja Krabbameinsfélagið. Já fínt. Tókst semsagt að ýta á þetta dót, taka ekki eftir því að reikningsnúmerið breyttist, fá upp staðfestingarglugga þar sem stóð - Viðtakandi: Krabbameinsfélagið og ýta samt á staðfesta.
Sá fyrir mér mjög óþægilegt símtal við Krabbameinsfélagið: “ehh já ég ætlaði sko ekki að styrkja ykkur, má ég fá peninginn minn aftur.” Ef ég væri Frank Hvam hefði þetta sennilega endað í einhverri absúrd uppákomu og krabbameini í eistum. En prufaði að hringja í bankann og það var ekkert mál að bakfæra þetta. Samt pínu leiðinlegt því maður ætti náttúrulega að styrkja gott málefni. En á síðustu og verstu þá getur maður ekkert óvart gefið sísona andvirði á heilli bensínfyllingu á jepplinginn.
Ein athugasemd »
Það var þokkalegasta veður í Landmannalaugum í gær og ég ihugaði að fara af stað í stuttermabol og stuttbuxum en leist ekki betur á veðrið en svo að ég ákvað að henda yfir mig síðaerma þátttöku bolnum. Það reyndist mjög mikilvæg ákvörðun því fljótlega eftir að hlaupið var ræst byrjaði að rigna og þegar ofar var komið bættist við vindinn. Var 75 mínútur upp í Hrafntinnusker sem er svipaður tími og í fyrra. Fann greinilega að allar Esjuferðirnar voru að skila sér því þetta reyndi lítið á. Stoppaði og át einn banana og drakk tvö powerade glös. Hélt svo áfram. Óvenjumikill snjór var fyrstu kílómetrana frá Hrafntinnuskeri sem mér fannst erfitt að hlaupa yfir og tóku úr mér töluverða orku. En var samt á góðu róli þegar ég kom að löngu brekkunni niður að Álftavatni. Fór hægar niður hana núna en í fyrra, bremsuvöðvarnir í lærunum eru líka vel þjálfaðir eftir Esjuna þannig að þegar niður var komið leið mér bara vel og gat haldið ágætis tempói að Álftavatni. Millitími 73 mínútur.
Át annan banana þar auk súkkulaðibita og lét fylla á brúsann. Uppi á hólnum milli Álftavatns og Hvanngils hvessti hressilega. Mér leist eiginlega ekkert á blikuna því ég kólnaði töluvert og var ekki með neinn jakka í töskunni minni við Bláfjallakvísl. Síðermabolur yrði að duga. En þegar niður á sandinn var komið var vindurinn í bakið og smá rigning af og til - fínt hlaupaveður. Óð yfir Bláfjallakvísl og brunaði beint af stað - hvarflaði ekki að mér að skipta um skó og sokka þar eins og í fyrra. Fínt að fá kælingu á tærnar og maður þornar ótrúlega fljótt. Rúllaði á góðu tempó-i yfir sandinn 4:40-5 c.a. og var kominn í Emstrur áður en ég vissi af. Millitími 1:40 og eitthvað um 4:20 alls. Þarna gaf ég endanlega upp á bátinn drauminn um að komast undir 6 tímana þar sem það tekur lágmark klukkutíma og fimmtíu mínútur að klára síðasta legginn.
Var spurður í Emstrum þegar var að leggja af stað í síðasta hlutann hvernig mér liði og ég var ekkert að ljúga þegar ég sagði: “Ég er helvíti góður” en var varla kominn 5 metra þegar ég fór að finna fyrir krampa í vinstra læri. Krampinn dreifðist svo vítt og breitt um líkamann og kom við á undarlegustu stöðum, í tvíhöfðanum, við hásin og í ilinni en hann var þrautseigastur í lærinu. Neyddist til að ganga 1-2 kílómetra meðan það versta gekk yfir. Hópurinn sem ég hafði fylgt frá Bláfjallakvísl hvarf hratt meðan ég rölti og þau enduðu á 6:10-12 sýnist mér Hlaup.is. Píndi mig til að skokka síðasta kaflann niður Almenninga að kápunni og eftir það var þetta nánast bara rölt inní Húsadal, millitími frá Emstrum 2:05 og lokatíminn 6:25 sem er korters bæting frá því í fyrra. Er því bara helvíti ánægður með þetta í heild en á að geta gert betur ef ég passa betur upp á næringuna og vatnsdrykkjuna meðan hlaupi stendur. Sé á netinu að sumir hlauparar eru að dásama próteindrykki. Kannski það í bland við orkugelin henti mér betur. En maður er alltaf að læra svosem og ef það væri hægt myndi ég skrá mig núna í næsta Laugaveg og skal þá koma mér undir 6 tíma!
Ég að koma í mark:
Ég og Jónína eftir hlaup

Hellingur af Boot Cömpurum mætti í hlaupið
Fleiri myndir á Picasa.
3 Athugasemdir »
Stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag var óhugnalega nákvæm:
Dagurinn byrjar illa því þú sefur yfir þig; vaknar 8:36:07 og þú þarft að velta fyrir þér hvort þú hafir tíma til að fara í sturtu. En mundu að það er betra að vera seinn og sætur en fljótur og ljótur. Ekki klæðast ljósum bol því það er hakk og spaghettí í hádegismatinn. Þú ákveður að nýta frípassann í Hreyfingu seinni partinn. En verður fyrir vonbrigðum því gufan er köld.
Hrollvekjandi stöff. Án gríns ég er með gæsahúð. En haldið hestunum ykkar, spáin í gær rættist ekki.
Þér finnst breytinga þörf í lífinu og ákveður að hlaupast á brott með karlkyns vinnufélaga.
Annars! Laugavegsmaraþon eftir 4 daga. Ekki laust við að maður finni fyrir nettum fiðring. Afskaplega penum en fer vaxandi. Djöfull ætla ég að spæna upp þessum Laugavegi. Skiljann ófæran eftir. Hljóp síðasta langa hlaupið í Austfjarðaþokunni um helgina. 5km mjög rólegir í dag (24 mín) og 3km á morgun. Svo bara nudd og huggulegheit. Það er nú það sem þessi Laugavegur er fyrst og fremst; slefandi huggulegur.
Engar athugasemdir »
Á níunda og tíunda áratugnum var ekki gerð sú hasar- eða spennumynd (og lögguþættir) án þessa að á einhverjum tímapunkti var vondur gæi handtekinn og löggan þuldi upp:
You have the right to remain silent. Anything you say can and will be used against you in a court of law. You have the right to speak to an attorney, and to have an attorney present during any questioning. If you cannot afford a lawyer, one will be provided for you at government expense.
.
Veit ekki nákvæmlega hvenær þetta byrjaði að minnka af einhverju viti en skyndilega er þetta orðið algjör undantekning. Yfirleitt ef maður heyrir löggu þylja upp Miranda-warning í bíómynd núna er það einhver auka-lögga sem það gerir og leiðir vonda kallinn í burtu og maður heyrir þetta í bakgrunni meðan aðal-löggurnar eru áfram í mynd og segja hnyttnar setningar. Hvað olli þessari breytingu? Mér fannst alltaf notalegt að hafa þetta sem hluta af framvindunni. Eitthvað kunnuglegt sem allir gátu hreyft varirnar við. Er þetta til að hraða framvindu sögunnar? Kannski er þetta orðið svo meitlað inní hauskúpuna á áhorfendum að það nægir að vísa í þetta sem hálfgerða neðanmálsgrein. Eða er löggan í Ameríku kannski raunverulega hætt að þylja þetta upp.
Á sama tíma var mjög vinsælt í bíómyndum að láta vitni í dómsmálum leggja hönd á Bíblíu og fara með romsuna
I solomnly swear to tell the truth, the whole truth and nothing but the truth so help me God”
Þessi romsa virðist hafa fengið sömu örlög. Það heyrir nú til algjörra undantekninga að þetta sé hluti af sögunni. Vont fyrir handritshöfunda sem þurfa núna fylla inní þessa mínútu með öðru efni. En hvað er málið? Þykir það ekki nógu PC í dag láta sýna fólk sverja við Biblíuna að segja sannleikann?
Ein athugasemd »
Eigum við eitthvað að ræða þessar Ladda/Elsu Lund auglýsingar fyrir zik zak tískuhús. Sjitturinn titturinn hvað þetta er orðið þreytt. Ef ég væri yfir einhverri útvarpsstöðinni þá myndi ég taka fyrir að þessar auglýsingar væru spilaðar. Þetta hlýtur að draga úr hlustun, amk er nóg fyrir mig að heyra: “GVUUUUUUUU” þá er ég búinn að skipta um stöð.
Rúmlega vika í Laugaveginn. Esja í gær (34mín), 25km í kvöld, 10 á morgun, hvíla á laugardaginn og svo 20km offroad á sunnudaginn, frá Viðfirði til Neskaupsstaðar. Næsta vika fer svo í hvíld, rólegt skokk 5-8km 2x eða 3x og heita pottinn. Kannski nudd líka, er búinn að finna fyrir verkjum undir vinstri il og í hásininni síðustu vikur. Ekkert sem hefur mikil áhrif á hlaupin þannig lagað en er pirrandi.
Engar athugasemdir »
Skrapp eins og áður hefur komið fram til Vestfjarða í alveg magnaða ferð. Gengum frá Melanesi inn í Sjöundárdal og upp í Ölduskarð, eftir skriðum að Stálfjalli og niður í fjöru að skoða gamla kolanámu. Gengum svo þaðan að vitanum í Skor og aftur tilbaka að Melanesi. Við fengum að tjalda á jörð í eigu Kjartans Gunnarssonar sem var hinn hressasti. Á föstudagskvöldinu þegar við vorum að koma til baka úr göngunni var byrjað að hvessa hressilega og rokið magnaðist heldur betur um nóttina - tjaldið mitt fór í mauk; rifið og flestar súlur brotnar. Á laugardeginum gengum við frá tjaldbúðunum (rústunum) og röltum meðfram Rauðasjó yfir í Keflavík. Síðasta (göngu) daginn gengum við svo eftir Látrabjargi í hífandi roki og skoðuðum fuglalífið. Planið breyttist töluvert við það að tvö af fjórum tjöldum eyðilögðust í rokinu. Náðum að leigja hús í Hænuvík fyrir síðustu tvær næturnar.
Það gerðist alltof margt fyndið í þessri ferð… Ég fer reglulega að hlægja þegar ég rifja þetta upp en kannski aðeins of mikið had to be there. Helsta svo ég muni þetta seinna:
Ísbjörn
“Heldur betur”
“Tveggja skóa ferð? Amk 5 skór”
Sólveig Ólafsdóttir
Bara fyrir staðkunnuga
Ég fer ef þú ferð
En jæja nóg af merkingalausu bulli; hér eru nokkrar myndir.




Og mandatory sjálfmyndin:

(Þetta er btw ekki eins einfalt með EOS 400 hlunk eins og með Ixus)
2 Athugasemdir »
Átti fótum mínum fjör að launa um helgina þegar ég slapp naumlega undan trylltum lýð og hvítabjarnaskyttum á Vestfjörðum. Nánar tiltekið á Rauðasandi og Látrabjargi þar sem ég var í 5 daga ferð með nokkrum vinnufélögum.
Þetta er í síðasta sinn sem ég geng í hvíta feldinum mínum.
Ein athugasemd »
Nýr tími í 5km á Tímasíðunni. Bæting um c.a. mínútu - styttist í ég rjúfi 20 mínútna múrinn. Fór semsagt í Miðnæturhlaupið í gær. Helvíti góð þátttaka og mikið stuð. Finnst samt 1500kall vera helvíti mikiið fyrir að taka þátt. Ekki einu sinni bolur í ár. Enn einn verðlaunapeningurinn og jú ein powerade. Það er það sem maður fær fyrir peninginn. Held að málið væri að sleppa þessum blessuðu þátttöku verðlaunum og hafa prísinn bara 500kall. Það hlýtur að duga til að kovera brautarvörslu, drykkjarstöðvar og tímatöku.
3 Athugasemdir »
Grunsamlega stutt í Laugaveginn - formið orðið alveg þokkalegt. Líklega betra form núna en í fyrra en svo ræðst þetta af veðri og dagsformi hvort markmiðið náist. Skrapp norður í Vestur-Húnavatnssýslu á laugardaginn með nokkrum BootCömpurum og við hlupum í kringum Vesturhópsvatn. 27km leið á malarvegi þarna kringum vatnið með nokkrum massífum brekkum. Góður rússíbani í endann þrjár magnaðar brekkur 12%, 14% og svo endaði þetta á 18% brekku upp að Borgarvirki. Ógleymanlegt, enda veðrið fullkomið, sól, vel heitt en góður vindur sem kældi mann niður. Tímínn var 2:29 sem þýðir ágætis meðaltempó þrátt fyrir allar brekkurnar.
Engar athugasemdir »
Sá í búðinni um daginn nýja tegund af eggjum sem áttu að vera hollar en þessi venjulegu hænuegg; með minna kólesteról, meira E-vítamín og eitthvað voða flott. Féll auðvitað fyrir þessu og keypti einn bakka. Guð minn góður hvað þetta var viðbjóðslegt. Ég get svarið að það var lýsisbragð af rauðunum. Ekki það ég hafi eitthvað á móti lýsi, bara ekki alveg það bragð sem maður kýs að hafa af soðnu eggjunum sínum. Hvernig dettur mönnum í hug að setja svona viðurstyggð á markað. Trúi bara ekki að einhver hafi smakkað þetta og gefið grænt ljós: “Jújú, þetta er bara ágætt, smá lýsisbragð en setur það örugglega ekkert fyrir sig” Ööööö jú!
Engar athugasemdir »
Sent af: gunnare í Sprikl
Hljóp/gekk upp Esjuna eftir vinnu. Fór lengri leiðina núna þ.e. hægra megin upp. 35 mínútur sléttar upp að steini - markmið sumarsins er klárlega að komast undir 30 mínútur. Ótrúlegur fjöldi af hlaupurum í Esjunni á þessum tíma. Ég spjallaði við nokkra á leiðinni og greinilegt að margir nota hana sem undirbúning fyrir Laugaveginn. Algengasta spurningin sem ég fékk var: “Ein ferð eða tvær?” Ég þótti ekki sérstaklega merkilegur með “bara” eina.
2 Athugasemdir »
Ég fékk gefins frían prufutíma um daginn þegar ég tók þátt í Neshlaupinu. Ákvað að nýta hann í kvöld og prófa nýju stöðina í turninum í Kópavogi. Þokkaleg stöð, magnað útsýni og nóg af tækjum og brettum. Svosem ekki mesti háannatími eftir átta á kvöldin þannig að sennilega er meiri traffík þarna á morgnana og seinnipartinn. Hljóp 9 km og lyfti aðeins. Seinustu 20 mín tók ég svo Hill prógram á brettinu - þrusu góð brennsla.
Og hey! (Ný útgáfa af “En hey!”) Fékk líka vikupassa í nýju Hreyfingar stöðina. Ætla að tékka á því við tækifæri - Væri góð tilbreyting að fara að æfa í stórri stöð aftur.
2 Athugasemdir »
Skrapp í dag að fylgjast með BootCömpurum rúlla upp Intersport Þrautakeppninni sem var haldin í dag í tilefni af opnun nýju Intersportbúðarinnar í Kópavogi. Þetta var beisikly sama þraut og í Icefitness eða bara Skólahreysti. BootCamp átti 10 lið af 14 og sigurvegarnir að sjálfsögðu þaðan.
Náði nokkrum þokkalegum myndum:
Fleiri inn á flickr.
Kíkti líka við á hjólauppboði lögreglunnar. Það var þokkalegasta tímasóun. Ekkert nema ryðguð hrúgöld til sölu og fólk þarna var gjörsamlega að tapa sér í uppboðsfíling. Átta ára gamalt ryðgað Pro Style hjól úr Hagkaup fór á 9.500 krónur. Raunvirði væri kannski nær 500 kalli. Eftir á að hyggja hefði ég átt að vera búinn að sjá þetta fyrir. Ef dýru og flottu hjóli væri stolið af manni myndi maður þá ekki tékka á því hvort löggan hefði hirt það upp einhversstaðar?
2 Athugasemdir »
Fór aftur á Esjuna eins og síðasta sunnudag nema bætti líka við 5km skokki á undan til að hita upp. Svipaðir tímar og síðast nema við fórum örlítið hægar niður útaf því það hafði rignt um morguninn og það var víða ansi sleipt.
Á leiðinni niður hljóp ég svo úr öðrum skónum. Var á fleygiferð að fara yfir læk og steig í drullu og ætlaði að stökkva yfir. Það gékk fínt nema skórinn varð eftir í drullunni og ég endaði hinum megin skólaus á annarri. Lenti auðvitað með skólausu löppina í rennblautum mosa. Kom svo sem ekki mikið að sök var orðinn þurr áður en ég kom niður. Allt í allt 28km - 2 tímar og 50 mínútur. Samkvæmt púlsmælinum fóru í þetta 2585 hitaeiningar!
Engar athugasemdir »
Sent af: gunnare í Fjöll, Bíó
Skrapp í háskólabíó að sjá Ama Dablam: Beyond the Void. Heimildarmynd um ferð tveggja íslendinga með Simon Yates upp á þennan tind í Himalaya fjöllunum. Mjög skemmtileg mynd og gaf manni helvíti góða nærmynd af háfjallamennsku. Hressandi að sjá aðstæðurnar sem menn þurfa að búa við 10-15 daga og hvað þeir þurfa að kljást við.
…
Í gær bjó ég svona orkubita til að hafa með í göngur, hlaup eða bara sem snakk. Bætti reyndar uppskriftina að mínu mati með því að sleppa sykrinum en setti í staðinn döðlur, 70% súkkulaði og tvær góðar matskeiðar af hnetusmjöri. Sjúklega gott og alveg semi hollt.
…
Tók upp á því að byrja synda um daginn og er að spá í að halda því áfram, amk 2-3x í viku. Þarf eitthvað að vinna í skriðsundstækninni, ég er 21 sekúndu með eina ferð sem væri kannski alveg þokkalegur tími ef ég væri að synda í 50m laug en maður ætti eiginlega ekki að láta það fréttast að ég er að böðlast þetta í 25m laug.
4 Athugasemdir »
Það var reyndar eitt annað sem gladdi mig pínulítið í Kringlunni í gær. Það kom upp að mér kona sem vildi æst fá mig til að vera á lista yfir fólk sem leikur í auglýsingum - jess, ekki búinn að tapa neinu Mojo-i þó ég hafi náð þrítugu!
Keypti m.a. svona dýnu , svona fínan hlaupajakka og þennan snilldar hlaupa/trail camelback..
Fór síðan í morgun upp á Esju (að steini), hljóp niður og hljóp svo í 13km beint á eftir (6,5km inn Varmárdalinn, 100-200m hækkun og svo til baka)
Tímar:
Mógilsá að steini: 39:29.6
Pása í 1 mín 50 sek.
Niður aftur: 17:38, samtals 58:58
13km við rætur Esju: 1:11:15
Heildartími með pásum var 2:22 allt í allt rúmlega 20km. Helvíti fín æfing og ekki ósvipuð upplifun og fyrsti hluti Laugavegsins þ.e. að Álftavatni. Svipuð hækkun/lækkun og vegalengdin álíka, kannski heldur styttri. Þá eru bara 30km eftir, hvenær hefur maður ekki getað skokkað 30km í rólegheitunum.
Engar athugasemdir »
Hjúkk maður - ótrúlegt en satt unnum við EKKI í Euruvision enn eitt árið. Þurfum þá ekki að hafa áhyggjur fyrr en á næsta ári hvar við höldum þetta.
Fór annars í Kringluna í gær með afmælisgjafabréfin. Kannski var það Eurovision stress í fólki en það var eiginlega sama hvar ég kom það var prumpulykt um alla Kringlu. Gaur sem satí stól að lesa í Eymundsson rak heiftarlega við nánast framan í mig þegar ég beygði mig niður til að skoða bók. Toppnum var samt náð í Útilíf þegar ég skoðaði hlaupastuttbuxur; það voru kúkarendur í innbyggðu innanundirbrókinni (hvað sem það annars heitir)! Hver mætir í Kringluna með skítugt rassgat og mátar stuttbuxur nærbuxnalaus?
Eina sem gladdi mig í þessari ferð var afgreiðslugutti í 10-11 sem gaf mér kaffi afþví kortakerfið var í fokki en ég gat að vísu ekki keypt kók fyrir Laufey en guttinn sagði að ég væri heppinn: “Þetta er hvorteð er svo dýrt hjá okkur”
4 Athugasemdir »
Ég er almennt ánægður með nafna minn Dr. Gunna og það sem hann tekur uppá. En ég verð að játa mér er farið finnast þessi okursíða hans vera á hraðri niðurleið. Fínt að fólk sendi inn dæmi um alvöru okur en þegar liðið er farið byrjað að skrifa heilu pistlana þarna inn finnst mér þetta vera full langt gengið. Pistla sem myndu sóma sér vel inná Barnaland.is eða álíka síðum. Bendi sérstaklega á #581 og #586. Finnst að hann mætti vera duglegri við að ritskoða það sem hann setur þarna inn. En hey!
Ein athugasemd »